Skilmálar & skilyrði

Skilmálar og skilyrði

Upplýsingar um fyrirtækið
Camo ehf.
Hlíðasmára 13
201 Kópavogi
511-3800 / camo@camo.is

Með því að ganga frá pöntun á camo.is samþykkir þú eftirfarandi skilmála:

Camo ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Camo áskilur sér einnig rétt til að ógilda pantanir séu þær ekki greiddar innan tveggja sólarhringa og eru þá vörurnar settar aftur í sölu.
Reikningsupplýsingar Camo eru 0111-26-620509
Kennitala: 620509-0350
Kvittun fyrir greiðslu skal senda á með pöntunarnúmeri sem skýringu/tilvísun á camo@camo.is


Afhending vöru
Hægt er að sækja pöntunina í verslun eða fá hana senda. Ef valið er að sækja, er pöntunin afhent í verslun Camo næsta virka dag.
Allar sendingar innanlands eru afgreiddar og sendar með Íslandspósti innan tveggja virkra daga.

Í einstaka tilfellum getur komið í ljós að vara sé uppseld en kemur þá yfirleitt aftur á lager innan viku. Viðskiptavinur er þá látinn vita næsta virka dag og boðið að fá pöntunina senda þegar varan kemur aftur eða að fá vöruna endurgreidda.

Af öllum pöntunum sem dreift er af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Camo ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Camo til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk. Við sendum allar vörur á pósthús Íslandspósts. Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur eða myndabrengl. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar.

Ef pöntunin ber sendingarkostnað þarf kaupandi að greiða hann hjá Íslandspósti við afhendingu. Burðargjöld er hægt að reikna út á heimasíðu þeirra hér.

Að skipta og skila vöru
Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er eða inneignarnótu á pappír sem framvísað er í verslun, sé þess óskað. Gildir inneignarnóta í eitt ár frá útgáfudegi.

Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist.
Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.